ahhh

Jæja þá eru þessar blessuðu kosningar búnar og ég er nú ekki alveg sátt við úrslitin í þessu bæjarfélagi en svona fór þetta bara... Ég reyndar var ekki alveg viss hvað ég átti að kjósa og fór ekki að kjósa fyrr en að verða 21 og fór þá í náttfötunum og skónum hans Stjána sem eru númer 46 eða eitthvað.. var eins og trúður og í kjól yfir náttbuxurnar... En ég eldaði svaka grísasteik og hún heppnaðist helvíti vel eða allavega var hún borðuð þó að sumum hafi fundist kartöflurnar betri Óákveðinn En planið var svo að skella sér á ball en það klikkaði heldur betur þar sem að ég sofnaði í djammgallanum upp í sófa, vaknaði svo um half 3.. hefði átt að skella mér á ball þá Óákveðinn 

Mútta er svo komin heim frá Norge og ég er ekki frá því að ég hafi bara saknað hennar þennan tíma sem hún var úti..  Svo er Íris að fara til Danmerkur í nótt, piff það eru allir að fara til útlanda Gráta Hanna, Íris. Kolla og Kristrún eru svo að fara til Bene um miðjan júli en þær ætla nú að koma heim áður en krílið kemur eða þá þær koma bara sama dag ef krílið ákveður að koma á réttum degi.. Svo er Margrét að fara út í lok júlí... og bara allir... Öskrandi 

Svo þetta blessaða debetkort mitt... ég sem var búin að týna því og það var búið að vera týnt í næstum 2 vikur.. svo var systa að leita sér að verkjatöflu og ég bendi henni á að það gæti verið upp á hillu og nei nei allt í einu springur hún úr hlátri... fann hún ekki helv... debbaran og ekki nóg með það þá vissi Haukur af honum þarna... Ég þyrfti að láta festa ýmsa hluti við mig.. eins og síman (jájá ég veit) lyklana af húsinu og bílnum og debbarn.. held ég yrði góð þá...

En jæja held þetta sé gott í bili... 

Slauga bumbulína sem fer ekki til útlanda þetta árið Óákveðinn

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún

hehe, ég hefði gott af því að týna kortinu mínu svona skemmtilega ;) gæti sennilega sparað helling hehe!!

og ekkert gráta það að komast ekki til útlanda þetta árið - þú færð miklu skemmtilegra í staðinn - A BEIBÍ!!! ;)

annars skemmtilegt að sjá nýju síðuna þína :D ívúha!!! :D :D

Sigrún, 31.5.2006 kl. 23:59

2 Smámynd: Sigrún

HAHAHAHHAHAHA, ég er sko alveg út úr heiminum - það eru allir óléttir núna þannig að rugla öllum saman með hvenær krílin koma í heiminn ;) þú ert sú eina sem bíður EKKI eftir mér :D hehe !!!

Sigrún, 1.6.2006 kl. 23:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband