júhú... litli frændi kom loksins í heimin...

 Ert þú að velta því fyrir þér hvort þú sért tilbúin(n) til að eignast barn? Þá ættirðu kannski að taka þetta próf fyrst!

 Fituprófið

 Smurðu hnetusmjöri á sófann og aðeins upp á gardínurnar. Settu nokkrar kjötbollur á bak við sófann og láttu þær vera þar yfir sumarið.

Leikfangaprófið

Náðu í kassa með 25 kílóum af Legó-kubbum. Fáðu vin þinn til að dreifa vel úr kubbunum á gólfið í íbúðinni. Láttu binda fyrir augun á þér. Reyndu svo að fara frá svefnberginu og inn í eldhús og aftur til baka. Það er bannað að vera í skóm og alveg bannað að æpa því það getur vakið barnið um nætur.

Stórmarkaðsprófið

Fáðu lánað eitt dýr af millistærð (t.d. geit) og farðu með hana í næsta stórmarkað að versla. Hafðu auga með geitinni allan tímann og borgaðu fyrir allt sem hún étur eða eyðileggur.

Fataprófið

 Hefurðu prófað að klæða tveggja ára gamalt barn í föt? Fáðu þér stóran, lifandi og spriklandi kolkrabba. Troddu honum í lítið innkaupanet og passaðu að hafa alla armana inni í pokanum.

Matarprófið

 Keyptu þér stóra plastkönnu. Fylltu hana til hálfs með vatni og hengdu hana svo upp í loftið í snúru. Láttu könnuna sveiflast til og frá eins og pendúl. Reyndu nú að koma einni matskeið af hafragraut niður um stútinn á könnunni um leið og þú leikur flugvél með skeiðinni. Helltu svo öllu innihaldinu á gólfið.

Næturprófið

Saumaðu þér lítinn poka úr sterku efni og fylltu hann með 4-5 kílóum af sandi. Klukkan 15 tekur þú pokann upp og byrjar að ganga um gólf með hann um leið og þú raular. Þessu heldur þú áfram til kl. 21. Leggðu þá pokann frá þér og stilltu vekjaraklukkuna á 22. Þá þarftu að vakna, ná í sandpokann og syngja öll þau lög sem þú hefur mögulega heyrt um ævina. Semdu svo 10-12 ný lög og syngdu þau til kl. 4 um morguninn á meðan þú gengur um gólf með pokann. Stilltu vekjaraklukkuna á 5. Vaknaðu og taktu til morgunmat. Gerðu þetta alltaf 5 daga í röð og líttu glaðlega út!

Bílprófið

 Gleymdu því að fá þér BMW og fáðu þér station-bíl (þið vitið þessi löngu að aftan til að geyma vagna, kerrur og alls konar fylgihluti!) Keyptu þér súkkulaðiís í brauði og settu hann í hanskahólfið. Láttu hann vera þar. Finndu krónu. Settu hana inn í geislaspilarann í bílnum. Fáðu þér stóran pakka af kexkökum og myldu þær allar í aftursætið. Nú er bíllinn tilbúinn!

Þolpróf kvenna

 Fáðu lánaðan stóran grjónapúða og festu hann framan á magann á þér. Þú getur notað öryggisnælur og nælt pokanum í fötin þín. Hafðu pokann framan á þér í 9 mánuði. Að þeim tíma liðnum geturðu fjarlægt 1/10 af innihaldi pokans - 9/10 verða eftir.

Já maðyr hefði kannski átt að prufa þetta allt... En allavega er Jenný loksins búin að eignast strák svo Þröstur er orðin stóri bróðir og hann er sko ekkert smá montin, maður öfundar Jenný nú pínu yfir að vera búin með þetta en ma'ur verður víst að bíða aðeins lengur með þetta...

Slauga...... mér finnst ég vera að springa Gráta


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband